14.4.2007 | 05:30
Jafnræðisreglan
Magnað, ekki nóg með að hún tryggi að leyst sé eins úr sambærilegum málum heldur tryggir hún líka að ósambærileg mál hljóti ósambærilega afgreiðslu....Magnað !
Erum 3 eftir á lesstofu Lögbergs, Kára bíður þessi hrekkur þegar að hann kemur aftur á morgun http://www.youtube.com/watch?v=wt2ooWcrJYs
11 dagar (held ég) í fyrsta prófið, minna en mánuður í sumarfrí, 2 mánuðir í einkunnir, 14 mánuðir í útskrift (vonandi), 40 mín, í að ég fari heim, 2 1/2 klst í að ég fari að sofa....ég elska upptalningar, þær eru nýjasta æðið mitt.
Þrennur í póker eru bara lélegar, líka 2 pör með top kicker, ég dett heldur aldrei á litinn, né open ended, ég er ekkert bitur neinei. Elska líka að spila á móti Eggerti, hann er svo mikið fyrir að leyfa manni að reyna að detta á spil. Spurning um að hætta að spila póker, segja sig úr þessu meðan maður er enn í gróða, annað hvort það eða koma sér í feita skuld. Lýst eiginlega betur á það, mun skemmtilegra næstu 3 mánuði allavega.
Mynd dagsins á klárlega Baldur í Hyttetur í Osló, svona í tilefni þess að hann er örugglega í þessu ástandi núna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.4.2007 | 04:09
Próflestur?
Af hverju gerir maður alltaf allt annað en að læra samviskusamlega þegar maður er í próflestri? Þurfti einfaldlega að forða mér úr Lögbergi því það þurfti alltof lítið til að trufla mig og fá mig í eitthvað rugl. Ákvað að fara heim að lesa, virkaði vel fyrsta klukkutímann eða svo. Svo datt mér þessi snilldarhugmynd í hug að kannski ég ætti bara að fara að blogga aftur...frábær hugmynd.
Annars er óskhyggja dagsins að vera Baldur í dag. Ég ligg upp í rúmi í ullarsokkum að lesa tímaglósur um þjónustugjöld úr tíma hjá PRÓFESSOR RRS. Baldur er eflaust nakinn að hlaupa á milli þess að stökkva í ískalda vök og tjilla í alvöru finnskri saunu með bjór í annarri og eins og eitt stykki ljóshærða í hinni.
Próf, kosningar og Eurovision að nálgast, hörku action helgina sem ég klára prófin, get varla beðið.
Ingi engin Akureyrarferð í ár?
Mynd dagsins á Kári fyrir að minna mig á að það er í lagi að detta í það í miðjum próflestri, ekkert eðlilegra í rauninni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar