Færsluflokkur: Bloggar

Jafnræðisreglan

Magnað, ekki nóg með að hún tryggi að leyst sé eins úr sambærilegum málum heldur tryggir hún líka að ósambærileg mál hljóti ósambærilega afgreiðslu....Magnað !

 

Erum 3 eftir á lesstofu Lögbergs, Kára bíður þessi hrekkur þegar að hann kemur aftur á morgun  http://www.youtube.com/watch?v=wt2ooWcrJYs

Kárahrekkur

 

11 dagar (held ég) í fyrsta prófið, minna en mánuður í sumarfrí, 2 mánuðir í einkunnir, 14 mánuðir í útskrift (vonandi), 40 mín, í að ég fari heim, 2 1/2 klst í að ég fari að sofa....ég elska upptalningar, þær eru nýjasta æðið mitt.

 

Þrennur í póker eru bara lélegar, líka 2 pör með top kicker, ég dett heldur aldrei á litinn, né open ended, ég er ekkert bitur neinei.   Elska líka að spila á móti Eggerti, hann er svo mikið fyrir að leyfa manni að reyna að detta á spil.   Spurning um að hætta að spila póker, segja sig úr þessu meðan maður er enn í gróða, annað hvort það eða koma sér í feita skuld.  Lýst eiginlega betur á það, mun skemmtilegra næstu 3 mánuði allavega.

 Picture 057

Mynd dagsins á klárlega Baldur í Hyttetur í Osló, svona í tilefni þess að hann er örugglega í þessu ástandi núna. 


Próflestur?

Af hverju gerir maður alltaf allt annað en að læra samviskusamlega þegar maður er í próflestri?  Þurfti einfaldlega að forða mér úr Lögbergi því það þurfti alltof lítið til að trufla mig og fá mig í eitthvað rugl.  Ákvað að fara heim að lesa, virkaði vel fyrsta klukkutímann eða svo.  Svo datt mér þessi snilldarhugmynd í hug að kannski ég ætti bara að fara að blogga aftur...frábær hugmynd.

 

Annars er óskhyggja dagsins að vera Baldur í dag.  Ég ligg upp í rúmi í ullarsokkum að lesa tímaglósur um þjónustugjöld úr tíma hjá PRÓFESSOR RRS.  Baldur er eflaust nakinn að hlaupa á milli þess að stökkva í ískalda vök og tjilla í alvöru finnskri saunu með bjór í annarri og eins og eitt stykki ljóshærða í hinni.

 

Próf, kosningar og Eurovision að nálgast, hörku action helgina sem ég klára prófin, get varla beðið.

 

Ingi engin Akureyrarferð í ár? 

 

Mynd dagsinsP1010591 á Kári fyrir að minna mig á að það er í lagi að detta í það í miðjum próflestri, ekkert eðlilegra í rauninni.

 

 


Höfundur

Gunnar Þór Ásgeirsson
Gunnar Þór Ásgeirsson
Leiðinlegur laganemi sem hefur þörf fyrir að tjá sig... eða svona stundum allavega

Bloggvinir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband